Bakað eftir pöntun
Hver kaka er bökuð sérstaklega fyrir þinn hund.
Um hvuttakökurnar
Hver kaka er bökuð eftir pöntun úr hráefnum sem henta hundum. Markmiðið er einfalt: Að gera afmælisdaginn aðeins skemmtilegri og sérstakari fyrir bestu vini okkar. Hvert ár með þeim er dýrmætt og ber að fagna!
Það sem skiptir máli
Hver kaka er bökuð sérstaklega fyrir þinn hund.
Uppskriftin er gerð úr hráefnum sem henta hundum.
Hnetusmjör, eplamauk og graskersmauk eru útbúin hjá okkur.
Hver kaka er skreytt í höndunum og engar tvær eru alveg eins.
Innihald
Kakan er gerð úr heilhveiti, eggi, ferskum gulrótum, smá matarolíu og svo heimagerðu hnetusmjöri, graskersmauki og eplasósu. Kremið er svo gert úr kartöflum og hreinni grískri jógúrt og er svo litað með náttúrulegum hráefnum - rauðrófusafa, gerjuðu rauðrófudufti, turmerik og spirulina. Kexið er svo gert úr heilhveiti, graskersmauki, hnetusmjöri, eggi og möluðum hörfræjum.
Hægt er að panta sérsniðna köku þar sem ákveðnum hráefnum er sleppt. Sumir hundar eru með viðkvæma maga, óþol og ofnæmi og við gerum okkar besta til þess að koma til móts við þá líka.
Sagan á bak við bakaríið
Það var undir lok árs 2024 sem hugmyndin að Hvuttabakarí kviknaði, langt frá Íslandi, í Cape Town í Suður-Afríku.
Aníta, eigandi og stofnandi Hvuttabakarís, var nýlent í borginni í heimsókn hjá vinafólki þegar henni var sagt að um kvöldið yrði haldið lítið afmæli heima í íbúðinni þar sem hún gisti. Á leiðinni heim átti því að koma við í búð, kaupa eitthvað gott á grillið og að sjálfsögðu sækja afmælisköku.
Eftir búðarferðina var haldið af stað að sækja kökuna. Anítu fannst þó heldur skrítið þegar bíllinn stöðvaði fyrir utan venjulegt heimahús í miðju íbúðahverfi. Það var ekki fyrr en Kirsten vinkona hennar kom aftur út, settist inn í bílinn og rétti Anítu kökuna að hún áttaði sig á því að þetta var ekkert venjulegt bakarí.
Og kakan var heldur alls ekki ætluð mennskum afmælisgesti.
Afmælisbarnið var Sammy, átta ára tíkin hennar Kirsten sem hér má sjá á myndinni.
Um kvöldið kom fjölskylda Kirsten og Bryne saman til að halda upp á afmælið hennar Sammy. Mennsku gestirnir grilluðu og nutu kvöldsins á meðan Sammy og hinir hundar heimilisins gæddu sér á stórglæsilegri afmælisköku sem hafði verið bökuð sérstaklega fyrir hunda.
Aníta hafði aldrei séð neitt þessu líkt áður. Hugmyndin um að geta pantað fallega afmælisköku, sérstaklega gerða fyrir hundinn sinn, sat eftir.
Og einmitt þarna, í lítilli afmælisveislu fyrir átta ára tík hinum megin á hnettinum, kviknaði hugmyndin að Hvuttabakarí.
Ekki löngu síðar varð hugmyndin að veruleika hér heima á Íslandi.