Algengar spurningar
Collapsible content
Er hægt að panta fyrir önnur tilefni?
Já svo sannarlega!
Þið veljið bara köku eins og fyrir afmæli en skráið í athugasemdagluggann fyrir hvaða tilefni kakan er.
Þar má endilega fylgja óskir um hvað á að standa á kökunni, litur og annað sem skiptir máli.
Hvað fylgir með pöntuninni?
Öllum pöntunum fylgir óvæntur glaðningur!
(Afmælishattur, klútur og slaufa eða bindi í sama lit og kakan ásamt litlum poka með Hvuttakexi frá Hvuttabakarí)
Hvað er í kökunum?
Innihaldslýsingu má sjá í "Um Hvuttakökurnar" valmyndinni á heimasíðunni
Hvað má geyma kökuna lengi og hvernig?
Kökuna má geyma í 7 daga í kæli.
Einnig má frysta afganga og geyma í allt að 2 mánuði í frysti.
Hvað þarf langan fyrirvara til að panta?
Lágmarks pöntunarfyrirvari eru 2 virkir dagar.
Það er hægt að panta langt fram í tímann og svo erum við með sniðugt afmælisáminningarkerfi sem hægt er að skrá sig í hér á heimasíðunni okkar.
Hvaða stærð þarf ég fyrir hundinn minn
Við bjóðum upp á þrjár stærðir af afmæliskökum:
🐾 Lítil – 5.000 kr.
Fyrir smáhunda og minni hundategundir, ca. 0–13 kg.
🐾 Miðstærð – 5.500 kr.
Fyrir meðalstóra hunda, ca. 15–35 kg.
🐾 Stór – 6.500 kr.
Fyrir stóra hunda, 35+ kg, eða þegar fleiri en einn hvutti ætla að deila kökunni. 🎂
Hvað kosta kökurnar?
🐾 Lítil kaka – 5.000 kr.
🐾 Miðstærð – 5.500 kr.
🐾 Stór kaka – 6.500 kr.
Sé óskað eftir sérbakstri eða sérsniðinni köku bætast 1.000 kr. við verð kökunnar.
Hvað kostar heimsending?
Heimsending er í boði á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi og kostar 1000kr
Hvað kostar að fá köku senda út á land?
Sendingarkostnaður út á land er breytilegur eftir áfangastað og miðast við verðskrá Samskipa.
Hægt er að sjá áætlaðan sendingarkostnað í reiknivél Samskipa fyrir innanlandsflutninga. Þar má miða við 0,01 m³ og 1 kg og haka við kæliflutning.
Sendingarkostnaður greiðist af viðtakanda.
Hvernig er greitt fyrir pöntun?
Greitt er með reiðufé við afhendingu nema þegar pantað er með sendingu á landsbyggðina en þá er millifært.
Við sendum póst með öllum upplýsingum daginn áður til þeirra sem panta út á land en samdægurs til annarra.