Aðrar vörur
Hvuttakex
Gómsætt Hvuttakex bakað úr hundavænu hráefnunum okkar - það sama og fylgir kökunum.
Innihald
Heilhveiti, heimagert graskersmauk og hnetusmjör, egg og möluð hörfræ.
Geymsla
Geymist best á þurrum stað í lokuðum poka eða íláti og er mælt með að nota innan 2 vikna við stofuhita. Kexið má einnig geyma í frysti og taka út eftir þörfum.
Af hverju þessi hráefni?
Við veljum einföld og hundavæn hráefni í Hvuttakexin. Grasker er trefjaríkt og getur stutt við eðlilega meltingu. Egg eru góð uppspretta próteina og innihalda nauðsynlegar amínósýrur ásamt vítamínum og steinefnum. Möluð hörfræ eru svo rík af trefjum og innihalda omega-3 fitusýruna ALA, sem meðal annars tengist heilbrigðri húð og feldi. Heilhveiti gefur kolvetni og trefjar og myndar góðan grunn fyrir stökkt kex. Hnetusmjörið bætir svo við próteinum og gerir kexið sérstaklega bragðgott.
Hvuttaís
Svalandi góðgæti fyrir hvutta úr hundavænum hráefnum.
Innihald
Jarðaber & hnetusmjör: Jarðaber, hrein grísk jógúrt, hnetusmjör og vatn.
Banani & hnetusmjör: Banani, hrein grísk jógúrt, hnetusmjör og vatn.
Bragðtegundir
Jarðaber & hnetusmjör
Banani & hnetusmjör
Geymsla
Geymist í frysti. Berið fram frosið eða látið mýkjast örlítið fyrir gjöf og losið þá ísinn úr boxinu. Ekki frysta aftur eftir að ísinn hefur þiðnað að fullu.
Af hverju þessi hráefni?
Við veljum einföld og hundavæn hráefni í Hvuttaísinn. Jarðaber innihalda trefjar sem styðja eðlilega meltingu og C-vítamín og andoxunarefni. Banani inniheldur meðal annars kalíum, sem er mikilvægt fyrir eðlilega starfsemi vöðva og tauga. Gríska jógúrtin gefur svo prótein og kalk og hnetusmjörið bætir við próteini og fitu ásamt því að gera ísinn sérlega braðgóðan. Vatnið gerir ísinn léttan og svalandi.
Hvuttakex & Hvuttaís
Sótt á Akranesi eða í Kópavogi.